Manufacturing Engineer - Bionics
Ossur
·Today
- Location
- Reykjavík, IS (Ossur), Iceland
- Type
- Full-time
- Department
- Engineering
- Education
- Master
- Closing date
- Today
- Source
- Workday
Description
Manufacturing Engineer - Bionics | Össur
Langar þig að vera hluti af drífandi og sterkri liðsheild innan stoðtækjaframleiðslu Össurar?
Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa í Bionics framleiðsludeild fyrirtækisins á Íslandi. Teymið vinnur að framleiðsluferlum tölvustýrðra stoðtækja og er leiðandi í innleiðingu á umbótum og nýjum vörum. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og unnin í nánu samstarfi við önnur teymi, svo sem vöruþróun, gæðadeild, innkaupadeild og vörustjóra. Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þátttaka við þróun og innleiðingu nýrra vara.
- Vinna við stöðugar umbætur á ferlum í framleiðslu.
- Vinna að gæðamálum í framleiðslu
- Eftirfylgni með vörum á markaði.
Hæfniskröfur:
- B.Sc eða M.Sc. í verk- eða tæknifræði
- Brennandi áhugi á vöruþróun, framleiðslu og umbótum ferla
- Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean) er kostur
- Reynsla af notkun SolidWorks eða sambærilegra 3D CAD kerfa er kostur
- Þekking á forritun (C# eða sambærilegt) er kostur
- Hæfni á sviði gagna- og kostnaðargreininga
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Metnaður og jákvæðni
- Mjög góð enskukunnátta
Taktu þátt í spennandi verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks.
Við hvetjum fólk til að sækja um starfið óháð kyni eða uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember, 2026.
//
Do you want to be part of a driven and powerful team within Össur's prosthetic production?
Össur is looking for an ambitious engineer to work in the Bionics production department located in Iceland. The department's role is to take care of the production, service and improvement of Össur's microprocessor-controlled prostheses. The projects are varied and challenging and are carried out in close cooperation with other teams, such as product development, quality department, purchasing department and product managers. We are looking for an organized, driven and solution-oriented individual who is passionate about projects that improve people's quality of life and mobility.
Main tasks and responsibilities:
- Participation in the development and introduction of new products.
- Continuous improvements of manufacturing processes.
- Work on quality issues in production
- Follow-up with products on the market.
Qualifications:
- B.Sc. or M.Sc. in engineering
- Passion for product development, manufacturing and process improvement
- Knowledge of lean management is an advantage
- Experience using SolidWorks or similar 3D CAD systems is an advantage
- Programming knowledge (C# eða sambærilegt) is an advantage
- Competence in the field of data and cost analysis
- Initiative and independent working methods
- Interpersonal and teamwork skills
- Ambition and positivity
- Very good English skills, written and spoken
Join us in our mission to improve people´s mobility.
We encourage people to apply for the position regardless of gender or origin.
Application period ends November 29th, 2026.